Alls skráðu 3.933 einstaklingar flutning innanlands í nóvember til Þjóðskrár. Þetta er talsverð fækkun frá síðasta mánuði um 13,2% þegar 4.532 einstaklingar skráðu flutning innanlands og einnig talsverð fækkun frá sama mánuði á síðasta ári eða um 9,3% en þá skráðu 4.145 einstaklingar flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.551 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.232 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 370 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 274 innan landshlutans og 74 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 322 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 225 innan landshlutans en 62 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.232 | 76 | 58 | 19 | 16 | 42 | 12 | 96 | 2.551 |
Suðurnes | 74 | 274 | 4 | 3 | 1 | 2 | 4 | 8 | 370 |
Vesturland | 39 | 5 | 124 | 2 | 1 | 0 | 0 | 5 | 176 |
Vestfirðir | 11 | 6 | 7 | 46 | 0 | 5 | 0 | 3 | 78 |
Norðurland vestra | 13 | 1 | 3 | 0 | 28 | 4 | 2 | 2 | 53 |
Norðurland eystra | 35 | 3 | 0 | 2 | 1 | 208 | 4 | 6 | 259 |
Austurland | 11 | 0 | 7 | 0 | 0 | 3 | 80 | 23 | 124 |
Suðurland | 62 | 10 | 0 | 5 | 0 | 2 | 18 | 225 | 322 |
Alls til | 2.477 | 375 | 203 | 77 | 47 | 266 | 120 | 368 | 3.933 |