Fólk08. mars 2023

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. mars 2023

Alls voru 226.939 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. mars sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 530 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.939 skráða meðlimi og hefur þeim fjölgað um 90 á áðurnefndu tímabili.

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. desember 2022 til 1. mars 2023  hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 143 meðlimir, sem er um 2,7% fjölgun en næst mest í Kaþólsku kirkjunni eða um 90 meðlimir, sem er um 0,6% fjölgun. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá lífskoðunarfélaginu Lífspekifélag Íslands, eða um 8,8%, en nú eru 35 meðlimir skráðir í félagið.  

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.066 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,7% landsmanna. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 74.559 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar