Fólk15. mars 2023

Flutningur innanlands í febrúar 2023

Alls skráðu 3.717 einstaklingar flutning innanlands í febrúar til Þjóðskrár. Þetta er talsverð fækkun frá síðasta mánuði eða um 14,3% þegar 4.335 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuði á síðasta ári var fækkunin um 4,0% en þá skráðu 3.871 einstaklingar flutning innanlands.

Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.397 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.046 einstaklingar innan svæðisins.

Á Suðurnesjum fluttu 386 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 256 innan landshlutans og 100 til höfuðborgarsvæðisins.

Á Suðurlandi fluttu 292 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 200 innan landshlutans en 78 til höfuðborgarsvæðisins.

Flutningur innan og milli landshluta

Frá / til Höfuðborgar- svæðið Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurland-
vestra
Norðurland-
eystra
Austurland Suðurland Alls frá
Höfuðborgarsvæðið 2.046 123 69 11 20 43 16 69 2.397
Suðurnes 100 256 16 1 2 6 1 4 386
Vesturland 30 1 110 1 2 5 2 3 154
Vestfirðir 17 1 1 40 1 1 0 1 62
Norðurland-Vestra 12 0 0 1 43 6 0 0 62
Norðurland-Eystra 27 1 1 0 0 247 3 0 279
Austurland 11 1 0 0 0 5 62 6 85
Suðurland 78 3 1 0 0 5 5 200 292
Alls til 2.321 386 198 54 68 318 89 283 3.717

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar