Alls skráðu 4.105 einstaklingar flutning innanlands í maí til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 14,3% þegar 3.590 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári var fækkunin um 18,1% en þá skráðu 5.014 einstaklingar flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.588 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.243 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 412 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 247 innan landshlutans og 124 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 302 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 219 innan landshlutans en 52 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
Höfuðborgarsvæðið | 2.243 | 97 | 59 | 25 | 14 | 38 | 19 | 93 | 2.588 |
Suðurnes | 124 | 247 | 10 | 6 | 1 | 14 | 2 | 8 | 412 |
Vesturland | 56 | 4 | 109 | 4 | 1 | 4 | 2 | 8 | 188 |
Vestfirðir | 24 | 3 | 3 | 34 | 0 | 2 | 0 | 3 | 69 |
Norðurland-Vestra | 18 | 2 | 3 | 1 | 61 | 9 | 0 | 1 | 95 |
Norðurland-Eystra | 29 | 6 | 1 | 6 | 5 | 270 | 6 | 18 | 341 |
Austurland | 20 | 1 | 2 | 0 | 0 | 13 | 69 | 5 | 110 |
Suðurland | 52 | 7 | 8 | 1 | 4 | 9 | 2 | 219 | 302 |
Alls til | 2.566 | 367 | 195 | 77 | 86 | 359 | 100 | 355 | 4.105 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.