Viðkomandi munu starfa með sterku teymi þvert á stofnunina að fjölbreyttum verkefnum. Þjóðskrá leggur áherslu á góða þjónustu og nýtingu stafrænna lausna og mikilvægt er að umsækjendur samsami sig þeirri sýn. Verkefnin eru krefjandi og kalla á frumkvæði og lausnamiðaða hugsun sem viðkomandi taka þátt í að móta hjá stofnuninni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun, netspjall og svörun tölvupósts
- Móttaka og afgreiðsla viðskiptavina í afgreiðslu.
- Leiðbeina viðskiptavinum í sjálfsafgreiðslu í afgreiðslurými.
- Skráningar í kerfum Þjóðskrár.
- Framleiðsla vegabréfa og annarra skilríkja.
- Innleiðing og mótun stafrænna lausna.
- Þátttaka í umbótastarfi.