Fólk13. júní 2024

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. júní 2024

Alls voru 78.259 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júní sl. og fjölgaði þeim um 3.836 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 5,2%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 659 einstaklinga eða um 0,2%.

 

Alls voru 78.259 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júní sl. og fjölgaði þeim um 3.836 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 5,2%.

Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 586 eða 14,9% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 166 eða 30,9%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 546 og eru nú 26.158 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 659 einstaklinga eða um 0,2%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. júní 2024 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2023.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þróun erlendra ríkisborgara

 

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.  
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar