Fólk13. janúar 2025

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. janúar 2025

Alls voru 80.320 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. janúar sl. og fækkaði þeim um 226 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 0,3%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 180 einstaklinga eða um 0,1%.

 

Alls voru 80.320 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. janúar sl. og fækkaði þeim um 226 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 0,3%.

Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 27 eða 0,6% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 2 eða 0,2%. Pólskum ríkisborgurum fækkaði um 110 og eru nú 26.429 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 180 einstaklinga eða um 0,1%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. janúar 2025 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2024.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þróun erlendra ríkisborgara

 

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.  
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar