Fólk15. janúar 2025

Hlutfall erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum og landshlutum þann 1. des. 2024

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2024. Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 64,9% niður í 5,7% þó að jafnaði er hlutfallið um 19,8% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2024.

Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 64,9% niður í 5,7% þó að jafnaði er hlutfallið um 19,8% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru 64,9% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 704 erlendir ríkisborgarar af alls 1.084 íbúum hreppsins. Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 44,9% og Bláskógabyggð með 36,4% íbúa.

Sveitarfélög með hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Sveitarfélaginu Skagaströnd. Alls eru 5,7% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 27 erlendir ríkisborgarar af alls 471 íbúum hreppsins. Næst lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Hörgársveit með 6% og Eyjafjarðarsveit með 6,1% íbúa.

Sveitarfélög með lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Suðurnesjum, 32,2% íbúa og Vestfirðir koma næst með 23,8% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er á Norðurlandi eystra, 12,1%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 1. desember 2024.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar