Skráning EES- eða EFTA-borgara í þjóðskrá til lengri tíma en 6 mán.

Beiðni EES- eða EFTA-borgara um skráningu í þjóðskrá til lengri tíma en sex mánaða. Athugið að mæta þarf á móttökustað og framvísa skilríkjum og öðrum nauðsynlegum gögnum áður en umsókn er tekin til vinnslu.

Afhendingarmáti

Skráningarvottorð sent með tölvupósti að skráningu lokinni.

Afgreiðslutími:

Almennur afgreiðslutími er allt að 5 virkir dagar eftir að öllum gögnum hefur verið skilað inn.

Verð:Gjaldfrjálst
Rafræn skil

Skráning EES- eða EFTA-borgara í þjóðskrá til lengri tíma en 3 mánuði

Getur verið að þú hafir þegar hafið umsóknarferlið?Fékkstu tölvupóst með staðfestingarnúmeri?

Athugið

Ríkisborgarar ríkja á EES og EFTA svæðinu þurfa að fylla út þessa umsókn ef dvöl þeirra er til lengri tíma en sex mánaða. Umsóknin er bæði beiðni um lögheimilisskráning og umsókn um íslenska kennitölu. Ef fyrirhuguð dvöl er styttri en sex mánuðir skal notast við eyðublað A-263.

Einstaklingar sem sækja um með rafrænum skilríkjum verða að gera það með sínum eigin skilríkjum. Eigi umsækjandi ekki rafræn skilríki þá er hægt að skrá sig inn og hefja umsóknarferli með netfangi. Þegar umsóknarferli er hafið og búið er að ljúka fyrsta þrepi þá fær umsækjandi sendan tölvupóst á netfangið sitt með tilvísunarnúmeri. Hægt er að fara úr umsókninni á hvaða tíma sem er og klára seinna en til þessa að komast í sömu umsókn þarf að skrá sig inn með tilvísunarnúmer umsækjanda og netfangi. Þá kemur umsækjandi inn í umsóknina á sama stað og hann fór úr henni síðast.

Umsóknin á við um ríkisborgara frá: Austurríki, Belgíu, Búlgaríu, Eistlandi, Frakklandi, Grikklandi, Hollandi, Írlandi, Ítalíu, Króatíu, Kýpur, Lettlandi, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Möltu, Portúgal, Póllandi, Rúmeníu, Spáni, Slóvakíu, Slóveníu, Sviss, Tékklandi, Ungverjalandi og Þýskalandi.

Lagaheimild skráningar