Breyting á skráningu
16 ára og eldri:
Einstaklingar sem eru orðnir eldri en 16 ára geta sjálfir tekið ákvörðun um skráningu í trú- eða lífsskoðunarfélag eða breytt skráningu sinni.
Þeir sem ekki geta nýtt sér rafræna tilkynningu um skráningu í trú-eða lífsskoðunarfélag geta mætt í afgreiðslu Þjóðskrár eða haft samband við þjónustuver.
Yngri en 16 ára:
Forsjármenn þurfa að undirrita tilkynningu um breytta skráningu barns í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hafi barn náð 12 ára aldri þarf að leita álit þess á umbeðinni breytingu.
Ef forsjá barns er sameiginleg tilkynnir annar forsjáraðilinn breytinguna. Hinn forsjáraðilinn þarf að fylla út staðfestingu á þessu eyðublaði
Þeir sem ekki geta nýtt sér rafræna tilkynningu um skráningu í trú-eða lífsskoðunarfélag geta mætt í afgreiðslu Þjóðskrár eða haft samband við þjónustuver.