Synjun á útgáfu nafnskírteina

Þjóðskrá er heimilt að synja útgáfu nafnskírteinis sem ferðaskilríkis vegna eftirtalinna atriða:
  • Einstaklingur hefur ekki íslenskt ríkisfang.
  • Umsækjandi er eftirlýstur af lögreglu, gefin hefur verið út handtökuskipun á hann, lagt á hann farbann og umsækjandi ekki afplánað dóma.
  • Samþykki forsjáraðila barns yngra en 18 ára vantar.
  • Samþykki lögráðamanns vantar fyrir nafnskírteini handa einstaklingi sem hefur misst sjálfræði.
  • Umsækjandi getur ekki gert fullnægjandi grein fyrir sér eða veitt nauðsynlegar upplýsingar fyrir umsókn.
Þjóðskrá er heimilt að synja útgáfu nafnskírteinis ekki sem ferðaskilríkis vegna eftirtalinna atriða:
  • Einstaklingur hefur ekki íslenskt ríkisfang.
  • Samþykki forsjáraðila barns yngra en 13 ára vantar.
  • Umsækjandi getur ekki gert fullnægjandi grein fyrir sér eða veitt nauðsynlegar upplýsingar fyrir umsókn.

Umsóknarferli

Upplýsingar um hvernig þú sækir um ný nafnskírteini.

Skoða nánar

Tegundir nafnskírteina

Nánari upplýsingar um tegundir nafnskírteina.

Skoða nánar

Afhending nafnskírteina

Þegar búið er að sækja um nafnskírteini, hvar getur þú sótt það?

Skoða nánar

Spurt og svarað

Spurt og svarað um nafnskírteini.

Skoða nánar