Umsóknarferli innanlands
Hægt er að forskrá umsókn um nafnskírteini hjáísland.is.
Ferlið er einfalt
Eftir að forskráningu er lokið þurfa umsækjendur að mæta innan 30 daga í eigin persónu á umsóknarstað í myndatöku. Á höfuðborgarsvæðinu er hægt að panta tíma í myndatöku.
Alltaf er hægt að mæta á umsóknarstað án forskráningar og sækja um.
Það sem umsækjandi þarf að hafa með sér:
- Persónuskilríki með mynd, ökuskírteini,nafnskírteini eða vegabréf.
- Greiðslu fyrir nafnskírteini ef umsókn er ekki forskráð. Gjaldskrá nafnskírteina.
Ef umsækjandi á ekki löggilt skilríki vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini þarf umsækjandi ásamt tveim vitundarvottum að koma á umsóknarstað, fylla út sannvottun einstaklings og votta í viðurvist að umsækjandi sé sá sem hann segist vera. Vitundarvottar þurfa að hafa meðferðis löggilt skilríki, vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini.