Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2016 var 636. Heildarvelta nam 28,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 45,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,2 milljörðum króna....