Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2016 var 659. Heildarvelta nam 26,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 40,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 16,9 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 2,5 milljörðum króna....